top of page

Íslenska Pönnukoku

pannan  

Íslenska pönnuköku pannan er hin klassíska „gamla góða“ panna sem hefur staðist tímans tönn. Hönnun hennar hefur lifað í yfir 70 ár og er enn í dag í uppáhaldi á íslenskum heimilum – enda einföld, traust og fullkomin fyrir þunnar og fallegar pönnukökur.

Pannan virkar á öllum hellum, þar á meðal spanhellum, og sameinar þannig hefðbundna hönnun og nútímalega virkni. Hún er íslensk hönnun þar sem áhersla er lögð á gæði og áreiðanleika.

Með pönnunni fylgir fallegur taupoki sem gerir hana að fallegri gjöf eða þægilegri geymslulausn. Einnig fylgir uppskrift svo þú getir byrjað strax að baka klassískar íslenskar pönnukökur.

Helstu kostir:

  • Klassísk hönnun sem hefur lifað í 70 ár

  • Hentar á allar hellur, einnig span

  • Íslensk hönnun

  • Kemur í fallegum taupoka

  • Uppskrift fylgir með

003.png

Sölustaðir

Þessir aðilar eru að nýju Keramik pönnuna

Keramik - Byggtogbuið.png
Húsasmiðjan logo.png
Rafha Logo.png
Byko Logo.png
bottom of page